miðvikudagur, júní 11, 2008

Sumarið í Síkildal

Heil og sæl!

Þá er maður í óða önn að koma sér fyrir í Kaliforníu. Þetta ríki er helst þekkt fyrir appelsínur, mengun, sjóbrettaiðkun og hreint geðveikan einkabílisma. Stöldrum aðeins við síðasta atriðið - hér eru sér akreinar fyrir þá sem ferðast 2 eða fleiri saman í bíl ("Carpool") sem eru nánast ekkert notaðar! (Það eru miklar sektir ef þú notar þær ef þú ert aðeins einn í bílnum). Hef reyndar heyrt að það sé vinsælt að "gefa róna far" til að komast fyrr í vinnuna. Ég endaði með því að kaupa bíl með Lars, en við búum saman í lúxusíbúð hérna rétt hjá vinnunni.



Við erum annars hér í vel útilátinni sumarvinnu hjá Yahoo! Research, sem er rannsóknadeild þessa stóra 14,000 manna netfyrirtækis. Það fyrsta sem netspekingarnir hugsa þegar þeir heyra á Yahoo! minnst er að leitarvélin sé verri en Google. Það er vissulega rétt, enda hafa Google um 53% markaðshlutdeild, og Yahoo! um 23%. Hins vegar eru endalaust margir notendur sem nota hinar þjónusturnar hjá Yahoo! (þeir segja að það séu um 500 milljónir notenda, sem telur Flickr! og aðrar stórar síður). Þó ekki fyrir neitt annað þá sjá þeir um að veita Google verðuga samkeppni. Þeir buðu mér líka meira spennandi sumarverkefni en Google svo ég sé ekkert eftir valinu.




Mitt starf felst sem sagt í því finna sannanlega góð reiknirit til að nota í dreifða skáarvinnslukerfinu þeirra, sem þarf að geyma petabæti af gögnum í aðgengilegu formi, meðal annars afrit af öllum vefsíðum (!). Nánar tiltekið er ég að vinna með þremur yfirmönnum, tveimur Stanford og einum MIT nemanda, að því að útfæra 'range queries' (leit að t.d. gögnum frá ákveðnu tímabili, notendum á ákveðnum aldri eða nýjustu tölvupóstunum) þannig að vinnslan sé sem mest samhliða. Mér er tjáð að öll stóru netfyrirtækin (þ.m.t. Google) séu með frekar ófullkomna lausn á þessu, en það er lítið um samskipti á milli þannig að maður veit aldrei. Allavega er ég að reyna að bæta stöðu mála hjá Yahoo, og stefnan er að gefa út grein um lausnina þegar/ef hún finnst. Ég er annars með drög að ágætri lausn sem ég hef verið að smíða og á að flytja fyrirlestur um á mánudag fyrir yfirmenn yfirmannanna. Tókst meira að segja að sanna setningar um ágæti lausnarinnar. Við skulum sjá hvort þeir finni ekki einhverja augljósa vankanta áður en lengra er haldið.



Það er mikið lagt upp úr því að láta hinum 150 sumarvinnupjökkum (sem og fastastarfsfólki) líða vel. Ég fæ t.d. lokaða skrifstofu með geðveiku útsýni - ólíkt yfirmönnum mínum sem lifa í cubicles. Það er heljarinnar dagskrá fyrir sumarið: allur morgundagurinn er undirlagður undir ratleik ala "The Amazing Race" um allt fyrirtækið. [UPPFÆRSLA: Liðið okkar lenti í 2. af 17 sætum] Farið verður í rússibanagarðinn "Great America" sem er beint fyrir utan gluggann, auk bíóferða, hæfileikakeppna, "speed networking" og ofurhetjupartýa. Málið með þessu öllu er náttúrulega að reyna að ráða til sín gott fólk, enda mikil samkeppni þessa dagana um góða verkfræðinga og vísindafólk. Ef maður endar svo í vinnu hérna er nóg af fríðindum eins og hjá samkeppnisaðilunum: ég fer í massagóðan mat í hádeginu fyrir 300kr (örugglega 10-15 mismunandi réttir sem hægt er að velja á milli), allt frítt að drekka. Ég kíki í flotta líkamsræktar og gufuaðstöðu í húsinu ókeypis 2-3 í viku, og svo eru síupptekin pool-, fussball- og borðtennisborð í hverju húsi. Svo má ekki gleyma fría gourmet kaffihúsinu á fyrstu hæð, og hvíldarherbergjunum með lazy-boy stólum. Það klæða sig allir hvernig sem er, eru í vinnunni frá kannski 9:30-10 til um 4:30 eða 5, og mæta seint á fundi.

Ofsalega góður andi hérna samt, þrátt fyrir vissan þrunga um að vera gleypt af stórfyrirtæki sem fæli í sér fjöldauppsagnir og algjörlega andstæðan kúltúr. Yfirmennirnir settu það svo upp að ef eitthvað mikið gerist (t.d. samruni við Microsoft), þá fá starfsmenn greidd sömu laun í 4 til 24 mánuði eftir hann eftir því hvað þeir hafa unnið lengi hjá fyrirtækinu. Dýr biti að kyngja fyrir rándýrin, en mikilvægur til að halda fólki við efnið.


Fyrstu vikuna hér var ég settur á flott hótel með dýrindis morgunverði. Um það er fátt að segja, en það markverða ætla ég að tjá í bundnu máli eins og sönnum Íslendingi gerist.

Kalli litli könguló klifraði upp á vegg.
Svo hófst sturtan og Kalli litli féll.
Þá sótti Ýmir gleraugun og sá þar könguló.
Svo kalli litli loðni var sendur lengst út á sjó.


[Til eru þeir sem efast um sannleika minn sem Íslending sökum þess að vera sífellt blindedrú og lítið víkingalegur í fasi. Þessu fólki sýni ég nammisafnið mitt.]
Já, þvílíkt skáld sem foreldrar mínir eiga. Nú þarf ég að taka upp skáldaheiti, en það hittir vel á því fyrir um mánuði síðan breyttist nafn mitt og varð Meistari Ýmir í stað Ýmis. Að sjálfsögðu þýðir þetta að fólki ber að hneigja sig við ásjón mína og ávarpa Meistarann sem slíkan, t.a.m. "Meistari Ýmir, þiggur þú aleigu mína?", "Meistari Ýmir, sefur þú?", og "Viltu koma strax að borða Meistari Ýmir!"

Mastersprófið var annars bara 45 mín fyrirlestur um það sem ég hef verið að gera (og ekki gera) undir vökulum augum 5 kennara (þ.m.t. Kleinberg sem notaði tækifærið til að lesa aðra grein meðan ég var að bulla uppi á töflu). Þetta fannst mér ganga sæmilega, en reyndar ágætlega miðað við 2 daga undirbúning. Ég ætlaði reyndar að undirbúa mig í heila 3 daga, en eftir að hafa sýnt Ken slæðusafnið á fyrsta degi hristi hann hausinn og tautaði "nei nei nei nei". Á ensku reyndar. Svo ég byrjaði upp á nýtt. Helsta efnið sem ég tók fyrir var verkefnið sem ég gerði með Vincent hinum franska sem komst í stuttri útgáfu á hina virtu ráðstefnu PODC í haust (ég fer í ágúst), og við dunduðum við að senda fulla útgáfu í "special edition" tímarit sem kemur vonandi út á næsta ári. Restin af fyrirlestrinum fór í hluti sem ég "er og ætla að gera", sem var skemmtilega yfirborðskennt. Fyrir utan stressandi/krefjandi spurningar frá prófessorunum (og öðrum) var þetta ekki sem verst.

Til að halda upp á þetta og fleira slóum við Becky til veislu sem við sameinuðum við "Heilagri Veislu" sem nokkrir stærðfræðingar voru að skipuleggja. Þeir fundu hvorki meira né minna en kíló af Jesú á eBay í oblátsformi, og ákváðu að fjárfesta í þessum herlegheitum. Hér má sjá myndir af kappáti þar sem Krystal vinkona Beckyar var fyrst að klára heila rúllu af dauðþurrum Kristi (það mátti drekka eða dýfa Jesú í karamellu í kappátinu). Að auki var "heilagt potluck" þar sem mátti finna rétti eins og "Lamb Guðs" og "Fried Jeez". Fólk hafði gaman af þessu, meira að segja kaþólsku Suður-Afrísku hjónakornin sem ég kynntist í viðskiptakúrsinum í vor, og kvöldið endaði í ótrúlegum Charades (Actionary) þar sem orð eins og "Antidisestablishmentarianism" og stærðfræðiformúlur voru leiknar og rétt giskaðar á innan við 90 sek.

Hún Becky gaf mér Venus Flytrap blóm fyrir nokkru. Það er blóm sem nennti ekki að vera neðst á fæðukeðjunni og kryddar því sólarljósið með því að kjammsa á flugum og stærri kvikindum sem rata inn í stóra munna. Hér má sjá Venus Flytrap borða flugu og frosk. Þó því hafi náð að smygla blóminu í handfarangri til Kaliforníu tók það illa í hina sterku sífelldu sól hérna og steiktist til bana litla greyið. Ég er því að leita mér að nýju blómagæludýri fyrir sumarið, sennilega nýjan flugnakræki.

Skoðum stuttar fréttir af öðrum vígstöðum. Við Lars spilum Starcraft eða horfum á myndir á kvöldin, síðasta föstudag buðum við tveimur félögum í svona LAN heimsókn og grúttöpuðum meira og minna öllum leikjunum (en gaman var það samt). Mæli með Kung Fu Panda, óvenju skemmtileg mynd þrátt fyrir vondan titil. Píanóið er í fríi í Íþöku yfir sumarið og puttarnir stífna með hverjum deginum. Að vísu fá þeir að teygja sig við og við því við Lars tókum upp á því að rifja upp innanhús klettaklifur u.þ.b. 1-2 sinnum í viku, en við tókum báðir námskeið í hjá Cornell. Það tekur vel á eins og sést á hinum Ýmsustu marblettum og verkjum í vöðvum sem ég sver að voru ekki til staðar áður. Ég held ég taki reyndar smá jöfnunarpásu í því þar sem síðasti klifurtími endaði snöggt þegar ég hætti að geta hreyft hendurnar af stífleika.

Ég fór áðan í einkatíma í enskum vals til Önnu Trebunskaya, en hún er atvinnudansari og keppti m.a. í Dancing with the Stars. Hér og hér má sjá vídeo af henni að keppa í þáttunum. Ofsalega fín og fær. Ég er sem sagt að spá í að taka tíma 2-3 í viku hjá henni og annarri sem ég hef ekki enn hitt, og koma mér svolítið áfram í dansmálunum yfir sumarið.

Ég kom svo örstutt heim dagana 6. til 13. júlí, og hlakka til að sjá ykkur sem flest. Þarf að kíkja í sund og fá mér nokkrar með öllu í desert.

Þraut 19: Hárrétt hjá Emblunni, þessi tennisvöllur er í Dubai. Það er tvennt merkilegt við hann: 1) Þetta er hæsti tennisvöllur í heimi, og 2) Hann er ekki til. Ef þið skoðið Google Maps af svæðinu sést að þetta er þyrluvöllur, en sá var víst dúðaður upp sem tennisvöllur í upphafi fyrir einhverja auglýsingaherferð. Dubai er jú líka uppfullt af skringilegheitum á borð við 7 stjörnu hótel með gullhúðuðum herbergjum, 30-40 stiga hitamun fyrir innan og utan leigubíl, heimatilbúnar eyjar og Ferrari bíla gefna í massavís á tombólum í skartgripahverfunum. Og jú, Embla fær vissulega sjeik þegar ég kem til landsins. (Sjáiði? Þið eigið öll að reyna við þessar þrautir, ekkert gaman að blogga þegar enginn tekur þátt! Hér er tækifærið)

Þraut 20: Af hvaða kattategund er hinn hreinræktaði "Kitty" hennar Beckyar? Hér má sjá tvær aðrar kisur af sama stofni.

1 Comments:

At júní 26, 2008 4:14 f.h., Blogger Erla said...

Hmm fyrst enginn annar er að spreyta sig ætla ég að giska á að þetta sé norskur skógarköttur :)

 

Skrifa ummæli

<< Home