Í sumarsins algræna skrúði

Og þá er Síkilsdalsdvölin senn á enda. Mikið var þetta nú annars skemmtilegt sumar :-)
Mér leiðast reyndar upptalningar, en hér eru helstu ævintýri undanfarinna tveggja mánuða í Kaliforníu.
- Becky kom tvisvar í heimsókn til mín. Í fyrra skiptið fórum við niður til sjávarbæsins Monterey sem er með ótrúlegt sjódýrasafn og fleira bitastætt.
Við fórum á veitingastað á fjallstoppi og horfðum á geðveikt útsýnið, en athyglisverðara var að horfa á rauðglóandi fjallshlíðarnar og brunabílana sem þutu fram hjá til að slökkva gríðarlega skógarelda sem voru þarna á Big Sur svæðinu. Við vörum örlítið smeyk að tjalda rétt hjá eldunum, en gerðum það þó samt. Þess ber þó að geta að nokkur þeirra tjaldstæða sem við höfðum í huga brunnu upp til agna þessa nótt...
Í seinna skiptið heimsóttum við skemmtilegan þjóðgarð að nafni Point Reyes þar sem við stríddum selum, gaddaskötum og öðrum ferlíkum í kajaktúr, og gengum niður að stórsteiktum vita sem var þarna lengst í buska. Við enduðum á svæði skammt frá þar sem við sáum torfu af stórhyrntum elgum ráfa um. Á þeim slóðum er víst talsvert af fjallakisum (eða fjallaljónum) sem við rákumst ekki á (kannski sem betur fer). - Í hverri viku voru Yahoo! starfsmenn með einhverskonar uppákomur fyrir okkur sumarstarfsmennina. Við heimsóttum risastóran skemmtigarð beint við hliðina á vinnustaðnum okkar og fórum á Giants hafnarboltaleik í San Francisco (mikið ofsalega er það leiðinleg íþrótt) umvafin fjólubláum Yahoo! teppum vegna kulda. Það var farið hingað og þangað og grillað og spilað blak og frisbí í hinum skemmtilegu görðum í Síkildal.
- Eitt af furðulegri uppákomunum var þegar garðurinn milli aðalbygginganna var fylltur af uppblásnum hoppuköstulum, nánar tiltekið eftirfarandi tækjum:
-
Kappþraut, þar sem maður á að klifra í gegnum göng, veggi og rennibrautir í kappi við einhvern annan - Teygjuþraut, þar sem maður er bundinn lóðrétt í teygjanlegt reipi (eins og í teygjustökki) og á að reyna að teygja hana eins langt og maður getur áður en hún kippir manni aftur á byrjunarreit
- Raunveruleikafussball. Þetta er ekki bara fótbolti eins og maður kynni að halda, heldur er maður bundinn við súlur þvert á lítinn fótboltavöll eins og menn á fussball-borði, og á að reyna að skora mark -- fáranlega gaman. (Þess ber að geta að fussball er þjóðaríþrótt Yahoo!)
-
- Það var haldin hæfileikakeppni meðal sumarstarfsmanna (sem voru hvorki fleiri né færri en 350 yfir sumarið) og mér tókst að krækja í annað sæti með því að spila Mario Bros lögin á píanó og syngja The Elements eftir Tom Lehrer. Þetta var tekið upp á DVD sem ég þarf að kíkja á, enda alltaf fjör að horfa á upptökur af sjálfum sér ("hver er þessi lúði eiginlega?")
- Ég og Lars fórum nokkrum sinnum til San Francisco, og þá iðulega spilað "disc golf", sem er golf spilað með frisbí disk. Þrælgaman, reyndar. Fórum líka á skútu með félaga mínum Kevin sem var að kenna með mér í hittífyrra og er nú í doktorsnámi við Berkeley. Sáum líka fólk sem hefur búið í trjákofum utan við Berkeley háskólann til að mótmæla fyrirhuguðu höggi fyrir bílastæði. Það merkilega er að það hefur verið þarna í trjánum í kringum 2 ár! Svæðið er umgirt þremur girðingum og sívaktað af lögreglumönnum, sem sýnir kannski hversu mikla samúð skólayfirvöldin hafa með þessum málstað.
- Nú er ég orðinn þrælþjálfaður dansari í latneskum dönskum, enda fór ég í 2-3 einkatíma í viku. Ætti því vonandi að geta gert góða hluti í keppnum í haust. Fór mest í Rumba, Samba og Jive, sem eru allir þrælskemmtilegir. Sjáum hvað setur, og vonum það besta :-)
En á milli skemmtana verður maður jú að vinna smá. Ég hafði mjög gaman af verkefninu sem ég var að vinna að, nánar tiltekið að þróa aðferð til að gera "range queries" á risastórum dreifðum gagnagrunni. Það tókst, og ekki bara að finna góða aðferð, heldur að sanna eitt og annað í kringum aðferðina, skrifa og prófa kóðann, gera drög að ritgerð sem við ætlum að senda inn á topp gagnagrunnsráðstefnu heimsins (SIGMOD) í desember, og sækja um einkaleyfi. Þeir voru víst vel ánægðir með mig þarna, svo ef mig vantar vinnu hjá rannsóknasviði Yahoo! eftir útskrift eða næsta sumar, þá stendur það til boða.
Nú er Becky farin til Botswana í Afríku (landið fyrir norðan Suður-Afríku) að vinna að AIDS-rannsóknum. Hún er að stúdera afbrigði HIV-1c sem 96% smitaðra í Botswana þjást af, og smitast auðveldar en önnur afbrigði, t.a.m. eru 40% (!) íbúa Botswana smitaðir af veirunni. Hún verður þarna fram til næsta júní, og það er skrýtið að vera svona langt frá hvoru öðru í svona langan tíma. Að vísu hjálpar netið, þar sem maður getur jú séð og heyrt í viðkomandi í gegnum Skype, en tímamismunurinn er frekar óheppilegur. Ef allt gengur vel þá kíki ég vonandi í heimsókn til hennar yfir jólin, enda frekar sjaldan sem maður fær tækifæri til að eyða mánuði í Afríku.
Það var ofsalega gaman að hitta ykkur öll í þessari stuttu heimsókn til Íslandsins. Ég skal gera mitt besta til að staldra við í meira en viku næst, en þetta var algjört púsluspil og lítið um svefn.
Bið að heilsa öllum sem ég hitti, og jafnframt þeim sem ég missti af - vonast til að hitta ykkur næst. Góðar fréttir annars, greinin sem ég skrifaði meðan ég var á landinu komst inn á ráðstefnuna HotNets, sem er virt workshop á mínu sviði þar sem aðeins 20% aðsendra greina komust inn. Ég fer því líklega til Colgarty í Alberta í Kanada í október. Það verða kannski kunnuglegar slóðir, en ég er núna á flugvellinum í San Jose á leið á PODC ráðstefnuna í Toronto þar sem ég mun flytja fyrirlestur á þriðjudag.Þá er verið að kalla út í vélina, bið að heilsa ykkur öllum!
Þraut 19: Er enn óleyst (því miður Erla mín). Hvaða kisutegund er þetta nú?
Þraut 20:
Hann Matt sem hefur dansað í yfir 80 löndum og orðinn heimsfrægur á YouTube (sjá http://www.wherethehellismatt.com) kom í heimsókn til Yahoo! og ég fékk að dansa með honum á myndbandi. Þrautin að þessu sinni er að finna mig á myndbandinu með honum á http://ycorpblog.com/2008/08/04/and-now-we-dance/ , og senda inn comment um hvar ég birtist á myndbandinu og hvaða dans ég er að dansa.
(Mín kæra fjölskylda má þó því miður ekki taka þátt).


4 Comments:
Æi en sæt matarborðsmynd, þetta lið hefur ekkert breyst :P híhí
Nú ef þetta er ekki norskur skógarköttur þá hlýtur þetta að vera emúi :P
Jæja..ef þú myndir hafa mig afsakaða ætla ég að fara að dansa Macarena þar til ég get ekki meir ;)
er hugsanlegt að þessi köttur sé þá ef til vill Main Coon tegundar?
Góðar! Hárrétt hjá þér Embla, hann Kitty er hreinræktaður "Maine Coon" kisi. Og jú, vissulega er ég að Macarenast á þessu myndbandi ;-) Á hvaða sekúndu má annars sjá ósköpin?
meira, meira!
Skrifa ummæli
<< Home