"Muuuu..."

Höfundur er ekki látinn, aðeins drukknaður. Til að mynda fór síðasta vika í að flytja fyrirlestur á þriggja daga ráðstefnu hjá IBM Almaeden, flytja svo fyrirlestur um kerfið sem ég smíðaði hjá Yahoo! í sumar fyrir doktorsnema í gagnasafnsfræði, skrifa grein fyrir NSDI sem á að vera tilbúin eftir 3 vikur, og að þjálfa mig undir danskeppni sem verður hér í Íþöku á laugardaginn kemur. Hver einasta vika er búin að vera svona síðan ég kláraði hjá Yahoo! í sumar. Fúff. Allavega, þangað til ég næ andanum verð ég að láta þetta myndasafn frá sumrinu nægja (smelltu til að komast á Flickr síðuna mína). Og gleymið ekki að leysa þrautirnar - það er mín helsta hvatning til að skrifa nýtt blogg :-)


1 Comments:
En það er búið að leysa þrautirnar!
Skrifa ummæli
<< Home