sunnudagur, nóvember 16, 2008

Háa skilur hnetti himingeimur


Ein af stelpunum sem búa í húsinu á móti okkur kom skríkjandi meðan höfundur var að mygla í greinaskriftum fyrir framan tölvuna. Jú, viti menn, hún ætlaði að fá sér kvöldkorn (sem er morgunkorn sem maður borðar allan daginn) en komst ekki að því þar var lúllandi mús að vernda góssið. Þar sem höfundur er náttúrulega ekkert ef ekki karlmennskan uppmáluð var þjófurinn "færður" út í garð, og þarf að finna sér ný híbýli. Sennilega hefur mýsla fengið sér rottueitur í hádegismat, fengið í magann og ákveðið að taka sér blund þarna innan um kex og kornkúlur (var þó sprelllifandi, bara hæg í förum). Þvílíkt sögulegt afrek.

Þetta minnir mig á þegar 7 ára ég var á vappi með kisu frænku minnar á Eskifirði, og tíndi upp mús sem hún hafði verið að veiða til að sýna mömmu. Í stað forvitni þegar ég kom í dyragættinar hoppuðu bæði mamma og frænka veinandi upp á stól. Ég reyndi að sefa þessi viðbrögð þeirra með því að benda vinsamlega á að músin væri dauð, og að ég væri að halda á henni með úlpunni en ekki berum höndunum. Það varð lítil breyting á hljóðinu í þeim frænkum.




Á undanförnum vikum hef ég verið að vinna hörðum höndum að rannsóknum. Ég er að gralla að því að senda inn eina eða tvær greinar núna áður en ég held til útlanda, og er með tvær til þrjár aðrar í vinnslu. Rannsóknardeild Yahoo! er búin að boða mig í viðtal varðandi fullt starf í febrúar sem er mjög spennandi, enda mikil samkeppni um svona rannsóknarstöður sérstaklega í harðandi efnahagsástandi. Ferlið felur í sér að ég fljúgi til Kaliforníu og haldi klukkutíma fyrirlestur fyrir um 30-50 manns fari svo í 6 klukkutímalöng viðtöl við rannsakendur hjá fyrirtækinu. Það er nóg sem þarf að hafa í huga varðandi útskrift (sérstaklega ef manni tekst að útskrifast ári snemma). Til að mynda hef ég verið að bardúsa í því að senda inn langa umsókn til að fá undanþágu frá hinni alræmdu 2 ára reglu Fulbright (styrkhafar þurfa að dvelja 2 ár í sínu heimalandi áður en þeir frá atvinnu- eða dvalarleyfi í Bandaríkjunum), sem mun taka um 6-9 mánuði í vinnslu. Það er nefnilega nóg fleira sem hægt er að læra hérna, svo um að gera að nota tímann.

En já, ég er á leið í hörku reisu. Ég fer nú bráðum í heilan mánuð til Afríku, nánar til tekið Suður-Afríku, Kenya og Botswana til að hitta Becky í sínu náttúrulega umhverfi, og skoða ljón, fíla og fljúgandi termíta. Við förum meðal annars í vikulangt Safari að skoða zebrahesta og alls kyns óraunveruleg dýr, og fá 109 moskítóbit. Held að ég hafi núna verið sprautaður með flestum þeim bóluefnum sem hafa verið gefin út. Hér má sjá mynd af Becky að klappa stórum kisum.



Í janúar held ég svo beint frá Afríku til Haifa í Ísrael að rannsaka fyrir IBM þar í 3 vikur. Nú fá flestir Íslendingar hland fyrir hjartað, enda hljómar lítið öruggt að vera í borginni þar sem eldflaugum frá Líbanon er dúndrað niður og strætisvagnar eru sprengdir í loft upp í sjálfsmorðsárásum. Jú, það er alltaf einhver hætta, en það er fátt sem gerist í lífinu án áhættu, auk þess sem ég kem til með að halda mig á þeim svæðum sem teljast örugg (t.a.m. ekki Gasa-svæðið, eða jarðsprengjuekrur). Þrátt fyrir að ég sé harðósammála utanríkisstefnu þessa ríkis (rétt eins og utanríkisstefnu Bandaríkjanna) langar mig að sjá landið með eigin augum til að skilja hvað í ósköpunum sé í gangi þarna. Þetta er sögulegur staður í miðju hins frjósama hálfmána, vöggu siðmenningarinnar. Sennilega verður þetta bara fróðlegt og skemmtilegt :-)

Hér er mynd úr kosningapartý þegar Obama var kjörinn næsti forseti. Það voru mikil fagnaðarlæti, jafnvel í hinni litlu Íþöku ruddist fólk út á götu og æpti af ánægju. Hans bíður mikið verk, en eins og einhver blaðamaður sagði um gæði Bandaríkjaforseta að þá hefði "botninum verið náð" á undanförnum 8 árum. En það eru enn tveir mánuðir í upphaf þessarra breytinga...

Þraut 21: Er enn óleyst. Spurt var "Hvað á Ýmir að gera í framtíðinni?" Embla var frekar heit, en hún telur að ég eigi að eignast bát og sigla um Karibbíuhafið með hana. Sennilega reyni ég fyrir mér hjá rannsóknafyrirtæki einhversstaðar áður en ég stofna mitt eigið fyrirtæki, það að gerast prófessor er frekar á hillunni þrátt fyrir að ég muni eflaust sækja um þannig störf til að opna dyr.

Þraut 22: Hilda hitti naglann í höfuðið og sá strax að um var að ræða þá bekkjarbræður (eða Bakkabræður) Wittgenstein og Hitler. Ætli kennarinn hafi verið stoltur af þessum fjölbreytilega árgangi? Eins og allir þrautalausnamenn (og konur) vita er í boði mjólkurhristingur þegar höfundur er heimsóttur heim. Gildir ekki með öðrum tilboðum. Gildir aðeins til útskriftar. Kemur ekki í stað heilbrigðrar líkamsræktar. Aðeins 3 ára og eldri.

Þraut 23: Spurt er um innihald. Hvaða kjötmeti, sósa og meðlæti er hér á ferð?

1 Comments:

At desember 14, 2008 4:52 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

kjötfroða, grísgrjón með músaskít og kál með furuhnetum? Hvað er ég eiginlega komin með marga sjeika?

EMBLA

 

Skrifa ummæli

<< Home