Rennur blóð eftir slóð
... og dilla ég þér jóð. Nei, bara djók. Hvaðan koma þessar frægu línur annars? Nú er langt liðið frá síðustu bloggstund og er helsta ástæða þess þrálátur tímaskortur. Kannski maður gangi yfir það helsta sem hefur drifið á dagana frá því síðast, nú þegar þú ert svo óheppin(n) að hafa þegar byrjað að lesa þennan pistill.Hann Halli kallinn reið á vaðið og kíkti í heimsókn í heila viku! Greyið fékk reyndar bara vindsæng til að búa á... En það var svakalega gaman að sjá hann aftur, og líka tilvalið að fá tækifæri á að bursta upp hina ryðguðu íslensku og fæla burt amerízka hreiminn. Um leið og hann kom byrjaði náttúrulega að snjóa, og stytti vart upp fyrr en hann fór aftur. Vetur konungur er greinilega með smá húmor þar sem hann sló vorinu sem var eiginlega komið í janúar/febrúar á frest, og ákvað að halda því áfram þegar heimsóknum lauk. (13-18 stiga hiti og verður þrumuveður á morgun!) Annars er Halli kallinn að valta yfir tölvunarfræðina í Háskólanum og stefnir á framhaldsnám hér í tækifæralandinu eftir 2-3 ár. Hér má sjá gamla (5 ára gamla) og nýja (5 daga gamla) mynd af kallinum.
Á sama tíma og hann var hérna vorum við, Georgios og Bistra að skipuleggja heimsóknardaginn sem ég hef nefnt í ótal bloggum hingað til. Hann hitti því mjög heppilega á dagskrá sem var sérhönnuð til að sýna fólki Cornell og tölvunarfræðideildina. Dagskráin innihélt m.a. þessa hluti:- Sýna fólki venjulegar íbúðir (sem voru að sjálfsögðu þær stærstu sem við fundum)
- Labba með fólkið um Campus (og gefa því Cornell-ís í eftirrétt)
- Borða ótal máltíðir með nýnemunum á bestu veitingastöðum bæjarins (allt náttúrulega ókeypis). Þrátt fyrir skilaboð um að reyna að fara ekki á ALVEG dýrustu staðina í bænum þá hunsuðu prófessorarnir sem fóru með okkur það gersamlega, og pöntuðu meira að segja forrétti og dýrt vín með matnum á allan mannskapinn á kostnað deildarinnar.
- Fara með þá á poster sýningu þar sem fólk úr deildinni kynnir sínar rannsóknarniðurstöður (og matur með)
- Skipuleggja massaskemmtilegt partí fyrir liðið, auk prófessora og fyrsta árs nema. Hér var ekkert til sparað, endalaust keypt af mat, snakki og áfengi, og írska stelpan á okkar ári (Eimear, sem er borið fram eins og Ýmir, hmm) bauð glás af frisbístelpum til að bjaga kynjahlutföllin aðeins og sá svo um írska drykkjuleiki sem fólk, þar með talið prófessorar og Halli, höfðu mikið gaman að. Nemarnir voru í rokna stuði og fóru þar af leiðandi sérlega seint heim um nóttina (2-3 leytið) og mættu því sárþreyttir (og sennilega timbraðir) fyrirlestra prófessoranna um rannsóknir í deildinni með morgunmat kl. 8 næsta morgun.
- Skella þeim svo á skauta, sem var síðasti skipulagði atburðurinn með þeim. Þarna var fólk sem var flugfært á skauta, og svo líka nokkrir sem aldrei höfðu séð ís áður. Hokkíliðið í deildinni okkar sá um að hjálpa fólki við að stíga sín fyrstu skref, kenna mér að bremsa og svona...

Þrátt fyrir veðrið (það byrjaði auðvitað að snjóa þegar Halli kom - rétt á undan nemunum sem voru nokkrir veðurtepptir í nágrannabæjum nokkra klukkutíma!) virtust nemarnir hafa skemmt sér konunglega, og stór hluti þakkaði okkur skipuleggjendunum kærlega fyrir frábært skipulag og þ.h. Nokkrir prófessorar lýstu meira að segja yfir áhyggjum að þetta hafi heppnast of vel og að of margir taki tilboðinu frá Cornell! (það er gert ráð fyrir að rúmur helmingur þeirra sem er boðið skólavist taki tilboði frá öðrum skólum) Við sjáum til, það kemur allt í ljós í apríl þegar þeir svara :-)
Hey, hann Baldur flugfiðla var annars að fá inn í Cornell! Hann sótti um OR (Operations Research) deildina á næsta stigagangi og fékk nú fyrir nokkrum dögum himinlifandi bréf um skólavist. Til hamingju með þetta Balli minn! Nú er bara að sjá hvort einhverjir af þeim enn betri skólum í fjármálastærðfræði (hann ætlar að tegra peninga eins og svo margir) nái að draga hann til sín, en það kemur væntanlega í ljós í mánuðinum. Að auki fékk hann styrk til að koma í heimsókn, svo hver veit nema að maður fái aðra heimsókn hérna bráðlega :-)Maður er annars búinn að vera að voða duglegur í deitmenningunni undanfarið. Kvöldmatur og kvikmynd í gær, og svo annað deit með sömu snót á þriðjudaginn. Hörkufjör..!
Á miðvikudagskvöldið verður allt að vera tilbúið fyrir Utah bakpokaferðalagið yfir vorfríið sem hefst á föstudaginn og stendur yfir í 9 daga! Það er búið að vera að kaupa alls kyns dót - allt frá sérstökum vatnsflöskum til göngusokka til handhægs morgunmatar. Þetta verður skrautlegt. Annars var hann Raghu að fá nýja glæsilega Canon myndavél til að taka með í eyðimörkina, svo ég fæ hans gömlu (þar sem nýju vídeótökuvélinni minni var stolið í New York yfir áramótin) til að fylla.Það er verið að drekkja manni í verkefnum þessa dagana, ofan á venjulega viku er nú búið að dæla tveimur risastórum verkefnum sem á að skila föstudaginn. Þeir felast í löngum ritgerðum þar sem maður á að læra allt um ákveðin undirsvið faganna (upplýsinganet og peer-to-peer kerfi) með því að lesa allt það nýjasta um þau (10-40 greinar!) og finna veikleika þar sem maður lagt eitthvað af mörkum - næsta verkefni eftir vorfríið felst einmitt í því að skrifa grein til útgáfu...
Ofan á þetta bætist slattavinna fyrir Kleinberg sem ég mun hitta aftur á miðvikudaginn og vill að ég lesi heilan haug fyrst. Við Georgios stofnuðum svo svona lítinn "pappírsklúbb" fyrir útvalda samnemendur okkar í fræðilegri tölvunarfræði þar sem við áætlum að hittast reglulega, brainstorma saman yfir einhverju tilteknu viðfangsefni, skipta svo niður á meðlimina því sem þarf að skoða betur og láta þá skrifa niður, og í endann smella saman grein. Við hófum vinnu að grein fyrir evrópskri ráðstefnu í sumar sem er með deadline 15. apríl. Nú þegar með þónokkrar niðurstöður, það er bara að vona að þetta náist á þeim 3 vikum sem eru frá því að við komum til baka grillaðir úr eyðimörkinni! Hugmyndin með þessum hópi er samt að koma meiru í útgáfu - margar þeirra hugmynda sem við fáum gleymast bara eða víkja fyrir öðrum deadlines. Vitum að krakkarnir í MIT eru með svona session, en hjá okkur vantar eitthvað sem er eingöngu fyrir nemendur. Annars eru Cornell og MIT álitnir vera tveir bestu skólarnir í fræðilegri tölvunarfræði.
Hún Embla systir átti afmæli í gær og varð með því 19 ára gömul. Styttist óðfluga í grafarbakkann, en eins og flestir lesendur vita endar lífið einmitt einhversstaðar í kringum tvítugt. Njóttu vel, it's all downhill from here!Halli smjattaði á síðustu tveimur þrautum og hefur því klárað þrjár þeirra. Hann fékk að launum svona jarðarberja- og vanillu sundae þegar hann kom hérna, en hafði eitthvað litla lyst á því svo ég endaði eiginlega með að borða það. Kannski smá svik... En það þarf ekki að stoppa ykkur, lesendur góðir, þegar þið kíkið í heimsókn!
Lausn á þraut 8: (endurtekið úr commentum)
He1 er besti leikurinn. Drottning verður ad valda riddara á e6, því annars kemur Bxe6#. Eina skákin er Dxh2+ Dxh2. Fari drottning á 6 .eða 7. línu kemur Bxe6+ Dxe6 Hxe6 og drottningin deyr aftur, nema það komi Bc8 en þá fer drottning á e8 og allt fer til fjandans fyrir svartan. Hann fer því grátandi heim. Þessi staða staða kom annars upp í leik Najdorf við Szapiro í Lodz, 1928. Najdorf á einmitt afbrigði í Sikileyjarvörn sem er, að mér best vitandi, uppáhald skákkóngsins Bergsteins (eða Beggi Feiti) sem keppir á Reykjavík Open í þessum töluðu orðum í 27-41. sæti af 102 með 3.5 vinninga í 6. umferð. Hér er mynd af honum í djúpum þönkum á mótinu ("læsti ég ekki örugglega útidyrahurðinni?").Lausn á þraut 9: Myndin var tekin í Hollandi árið 2001, og sennilega af Halla þannig að það er spurning hvort þetta teljist með ;-)
Þraut 10: Við sjáum mynd. Hver teiknaði, hver er á myndinni og hvað annað er listamaðurinn þekktur fyrir? Hér má einnig sjá aðrar myndir af sama módeli.
![]() | |
![]() | ![]() |





