þriðjudagur, júní 06, 2006

Heimkoma


Ég bara varð að eiga blog með þessari fjandi fínu dagsetningu (í orðsins fyllstu merkingu) :)
Er að eyða deginum í að pakka, skoða 6 íbúðir fyrir tvo verðandi nýnema og að taka skriflegt ökupróf svo ég geti nú fengið eitthvað skilríki í þessu landi (og jafnvel keyrt um).
Legg af stað heim árla morguns í rútu en neyðist víst til að skipta yfir í flug á einhverjum tímapunkti því það eru víst eitthvað ófært milli Bandaríkjanna og Íslands með langferðabíl. Hlakka til að sjá ykkur eftir nokkra daga!

Annars höfðu Baldur og Erla bæði hárrétt fyrir sér með þrautina, þetta var Strawberry Fields sem var vissulega reist í Central Park til minningar um John Lennon.