miðvikudagur, desember 13, 2006

Jólakveðjur!


Heil og sæl! Þá eru önninni minni lokið. Ekki finnst mér það nú hafa tekið langan tíma...

Ég varla man eftir síðustu tveimur vikum, það var svo mikið að gera. Ég og Goggi vorum vinnandi stíft samfellt í 41 klst að
  1. Skrifa grein fyrir ráðstefnu að nafni EC (Electronic Commerce)
  2. Skila lokaverkefni í 614 um nýja útfærslu af Collaborative Filtering sem okkur datt í hug og er mjög spennandi
  3. Gera risastórt vikulangt heimapróf í Approximation Algorithms
Málið var að allt þrennt hafði sama skilafrest, sem er algjört rugl fyrir fólk sem gerir megnið af hlutum rétt fyrir skilafrestinn (hóst hóst).

Inni í stofunni minni var heil hrúga af jólagjöfum sem ég eyddi heilum degi í að versla og öðrum í að pakka inn. Var að átta mig á því að hefði ég fyrir andvirði gjafanna mætti kaupa flugfar heim til Íslands og til baka, en sælla er að gefa en að þiggja. Annars bauðst hann Ingvar stærðfræðingur hérna að taka pakkana heim yfir jólin. Það er ekkert lítið verk, enda fylla þeir heila ferðatösku. Ég vona að þið ykkar sem fáið (illa innpakkaðar og furðulegar) gjafir frá mér (sennilega seint í þokkabót) njótið þeirra. Hinir (sorrý!) fá innilegar hátíðarkveðjur og að deila þrautunum sem ég lagði fyrir ykkur síðast. Þannig má vinna sé inn fyrir mjólkurhristingi þegar þið komið í heimsókn.

Ég er í augnablikinu að "púlla olnæter" í Washington hjá foreldrum Lars að:
  1. Leggja mitt að mörkum sem meðhöfundur í grein sem tveir í deildinni eru að skrifa um hvernig hægt sé að leiðrétta ranga strengi (approximate string matching) í skráarskipti (peer-to-peer) netum. Þetta er aðferð sem gæti t.d. keyrt ofan á KaZaA eða einhverju svoleiðis kerfi og látið þig vita hafa rétta gargið með "Britney Spears" ef þú skyldir leita að t.d. "Brittney Speers". Hingað til hefur þetta verið illmögulegt í svona P2P umhverfi (sökum eiginleika SHA1 hashing).
  2. Að auki er ég að undirbúa test-run fyrir $1,000,000 Netflix Prize keppnina sem byggir á hugmyndinni okkar Gogga úr 614 til að reyna að betrumbæta núverandi meðmælakerfi (sbr. ef þú hefur gefið ákveðnum bíómyndum einkunn, hvaða myndir ætti kerfið að mæla með fyrir þig?). Spennó...
Í fyrramálið (eða eftir um 5 klst) fljúgum við svo til Santiago í Chile!! Búnir að finna fínt gistiheimili í hjarta borgarinnar fyrir fyrstu tvær næturnar meðan við erum bíllausir. Þaðan verður sennilega farið í þjóðgarðaheimsóknir, en á boðstólnum er líka að eyða kvöldum á Latin-dansklúbbum borgarinnar, keyra upp í nágrenni Andes-fjallanna, skoða eyðimerkurnar, fara á Kyrrahafsstrendur eða í whitewater-rafting. Margt spennandi í boði þarna fyrir sunnan. Heyrðu, já, þarf svo að taka myndir af iðustraumunum þar sem fer jú í hina áttina m.v. heima. Við erum annars búnir að vera að hamast við að pakka dótinu okkar í bakpoka, var nefnilega að kaupa mér stóran og fínan svoleiðis sem verður vonandi notaður mikið næstu árin. Fann svo gönguskóna sem ég fór með Utah og hafa ekki einu sinni verið skolaðir síðan ... (ojj) Þeir voru svo kattþrifnir af mér (látum meininguna liggja á milli hluta) og fengu sjampómeðferð og fleira slíkt verðskuldað. Vonum að þeir verði vinalegir þarna fyrir sunnan og krefjist ekki of margra plástra. En já, fyrst þarf maður að ganga í gegnum 18-22 tíma flugferð...

Ætlaði mér að taka síðasta prófið sem ég þarf til að klára kúrsakröfurnar (sem þýðir í raun að ég fái mastersgráðu) fyrir nokkrum dögum, en það var á svo óheppilegum tíma að ég bíð með það fram í vor. Var nefnilega með feitan bunka (yfir 50 lausnir, flestar á 12-16 síðum) af 681 lokaprófum sem ég þurfti að fara yfir fyrir fimmtudaginn. Þeir eru nefnilega voða fljótir að fara yfir prófin hérna úti, er þegar búinn að fá úr tveimur af mínum kúrsum (fékk A í 614 Systems og A- í Approximation Algorithms). Bíð enn eftir kúrsinum hans Kleinberg, en þar var eina krafan að halda fyrirlestur.

Héldum svo rækilegt partý á fimmtudaginn, og náðum meira að segja að skreyta íbúðina örlítið. Gaf Georgios stóran rafmagns fondú-pott í afmælisgjöf sem við notuðum fyrir súkkulaðidýfu fyrir jarðarber og aðra ávexti. Þess fyrir utan buðum við gestum upp á jarðarberjasorbet, og ljúffenga köku sem Kimmie bakaði, auk ýmiss snakkmetis. Spiluðum Taboo allt kvöldið (spil þar sem þú reynir að lýsa sem flestum orðum fyrir liðið þitt á 1 mínútu án þess að nota bannorð sem eru háð hverju orði fyrir sig) og höfðum voða gaman að.

Á laugardaginn vorum við svo með lítil jól þar sem við opnuðum pakka frá fjölskyldunum. Það er ljóst að ég fer ekki í jólaköttinn að þessu sinni enda fékk ég fullt af fínum fötum. Íslenska nammið var líka kærkomið (bætir þó ekki upp malt- og appelsínmissinn yfir jólin) en er þegar búið... Engu að síður: kærar þakkir fyrir mig og mína!

Jæja, þá þarf maður að halda áfram með þessi verkefni, enda verður lítið um Internet næstu þrjár vikurnar! Bið ofsalega vel að heilsa heim, og vona að þú, lesandi góður, hafir það sérlega gott yfir hátíðirnar og megir eiga spennandi ár fyrir höndum.

Lausn á Þraut 14: Flugfiðlan Baldur var nú mjög heit, þetta voru vissulega (afar) háreist Cirrus ský. Nánar tiltekið voru þetta Cirrus Uncinus (svona krækjuský, þekki ekki íslenska heitið) sem boða hitaskil og oft rigningu (enda þýða ský í þessari hæð að rakinn sé talsverður!).

Þraut 15: væntir enn svars. Koma svo...!

Þraut 16: Hér er ein stutt jólaþraut. Ég er á einhverjum stað og krota X þar sem ég stend. Ég geng 1 km norður, staldra við, geng 1 km suður, bora í nefið og loks 1 km í austur, og er þá kominn aftur á stað X! Mér til hrellingar sé ég björn - hvernig er hann á litinn?