Single's Awareness Day
Ákvað að taka mér smá pásu frá tilraununum og rita nokkur orð.
Ég er að taka tvo þrælskemmtilega viðskiptakúrsa þetta misserið. Annar þeirra fjallar um strategíu fyrirtækja við tækninýjungar, staðlastríð og af hverju verri tækni getur orðið ofan á á endanum (t.d. VHS eða Windows). Hinn fjallar um aðferðafræðina við að koma háskólahugmyndum í fyrirtækjaform, og þótt háskólar séu suðupottur hugmynda þá leysa háskólanemar iðulega vandamál sem ekki eru til. Það er líka fróðlegt að kynnast nemendum úr alls kyns fræðigreinum [flestir úr vísinda- og verkfræðifögum] með skrautlega bakgrunni og rabba saman um business-hugmyndir yfir sérlega vel útilátnum og kampagóðum frímat sem viðskiptadeildir eru frægar fyrir. Í byrjun hvers tíma birtir kennarinn nokkur 3-4 milljón króna brandara, en það eru einkaleyfi fólk sem maður veit ekkert hvað er að pæla. Hvað haldið þið t.d. að þetta einkaleyfi sem fylgir þrautinni neðst sé?Í dag er Valentínusardagurinn, eða "Single's Awareness Day" og verður skrautlegt að sjá hvort einhver máli bæinn, eða a.m.k. campusinn, rauðan.
Í hans tilefni fékk ég stærðarinnr súkkulaðiklump frá kæró sem er núna allur orðinn fullur af framtannanagförum. Hún er þessa dagana í prófum, og er að þjálfa sig í spænsku því hún fer í viðtal til hinna virtu Fogarty-samtaka sem styðja læknanemendur og rannsóknafólk til eins árs starfsþjálfunar í þróunarlandi að eigin vali. Verði hún meðal efstu 22 af 40 sem fá viðtal (mörg hundruð umsækjendur) er hún spenntust fyrir rannsóknum í Perú, Malí og Bangladesh. Henni líst víst eitthvað illa á Kenýa, en það er víst að byrja hálfgert borgarastríð rétt hjá rannsóknasetrinu... Á myndinni má annars sjá köttinn hennar Becky, sem svarar eingöngu "Kitty".
Ég var hins vegar svo heppinn að fá 350.000 kr. styrk frá Yahoo! til rannsókna, og auk boðs á ráðstefnu fæ ég aðgang að gögnum frá þeim. Svo vill til að ég ákvað líka að taka þeirra fína tilboði um sumarstarf, og þó það sé skrýtið að segja nei við Google (og AT&T), þá var Yahoo! með mest spennandi rannsóknarstarfið af þeim þremur. Ég held líklega út til Santa Clara í Kaliforníu í lok maí og verð þar í þrjá mánuði að sleikja sól og rannsaka í tengslum við dreift skráargeymslukerfi sem þeir eru að þróa. Eins og Halli segir þarf ég líka að drífa mig að vinna hjá þeim áður en Micro$oft kaupir þá. Fékk Yahoo! annars líka til að senda okkur gögn til Cornell sem ég er að nota þessa dagana til að smíða módel af hegðun áhugamála fólks (hversu mörg áhugamál eiga tveir einstaklingar sameiginlegt?) og kem því vonandi almennilega á koppinn þegar Jon Kleinberg snýr aftur [hann var að vinna enn ein verðlaunin greyið, og er því á endalausu spani].
Var svo líka að senda inn grein á mánudaginn, fannst hún ansi fín þó ég segi sjálfur frá. Hana unnum við í samstarfi við tvo Fransara og sendum inn á ráðstefnu sem liggur á milli Systems og Theory og heitir PODC (principles of distributed computing). Er svo að rannsaka tvö stór verkefni, annað í samstarfi við þennan franska hóp, og hitt með hóp á vegum IBM í Ísrael. Var reyndar spurður hvort ég vildi vinna þar í sumar, en mér fannst eitthvað lítið spennandi sá möguleiki að fá eldflaug í hausinn og afþakkaði því pent.
Í næstu viku byrja ég að kenna mánaðarlangt námskeið fyrir lengra komna á UNIX. Það er frábrugðið fyrri kennslu að ég sé alfarið um námskeiðið sjálfur (líka efnið), og það borgar miklu betur en hin námskeiðin. Ég veit nú ekki enn hvað í ósköpunum ég ætti að kenna. Við skulum vona að ég finni út úr því áður en ég enda með að mæta með random efni úr öðrum námskeiðum eða sný þessu upp í kæruleysi og sýni myndir úr minni æsku í klukkutíma og syng íslensk þjóðlög með. Eða bara mæti alls ekki, og segi fólki bara að kaupa bókina og læra þetta sjálft.
Á föstudagskvöld stöndum við Íslendingarnir 10 hérna í Cornell fyrir Þorrablóti. Þetta verður nú reyndar í minni kantinum í heimahúsi, en hver og einn tekur 3-4 gesti með sér. Þó eitthvað sé til af brennivíni, þá er alls óvíst að nokkur verði Þorramaturinn, að undanskyldum harðfisknum, vegna eftirtalinna ástæða.- Það borðar ekkert okkar Þorramat því við erum spillt af eftirlæti og lifum á 21. öldinni.
- Það hefur enginn aðgang að Þorramat, og sending með hákarli og hrútspungum yfir hafið yrði sennilega álitið vera efnavopn og sprengt í loft upp.
- Á síðasta Þorrablóti þar sem Þorramatur var á boðstólnum voru útlendingarnir píndir til að smakka á öllum sortum. Hýsillinn Hrönn átti í stökustu erfiðleikum með að þrífa lyktina úr íbúðinni, þar til hún fann hálfétinn hákarl í blómapotti viku seinna.
Jæja, þá er að fara að lesa. En fyrst...
Þraut 17 er enn óleyst. Hún hljóðar svo: Spáum í gróðurhúsaáhrifunum. Hvað er það helsta sem gerist við að höggva niður eitt 200 ára gamalt tré í frumskóginum?
Þraut 18: Einkaleyfi á hverju ætli þessi mynd fylgi?


